HLIÐ VIÐ HLIÐ

Söngleikur með lögum Friðriks Dórs

Frumsýnt Lengd Salur 1
5. júlí 2:20 eitt hlé

Eftir fjölda uppseldra sýninga snýr gamansöngleikurinn með lögum Friðriks Dórs aftur! Sýnt í Háskólabíói í takmarkaðan tíma, aðeins núna í sumar!

Friðrik Dór er löngu orðinn landsþekktur tónlistarmaður og á hann mörg af vinsælustu lögum Íslands. Hlið við hlið, gamansöngleikur með lögum Frikka Dórs eins og “Í síðasta skipti”, “Segðu mér”, “Ekki stinga mig af” og “Dönsum eins og hálfvitar” snýr nú aftur í takmarkaðan tíma, en sýningin fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli úti á landi þar sem allt hefur verið eins í áraraðir og enginn í starfsmannahópnum virðist vera eðlilegur. 

Grímur hótelstjóri rígheldur í stjórntaumana sem enginn starfsmaður tekur alvarlega. Eva dóttir hans er búinn að missa allan áhuga á að búa á hóteli pabba síns með kærastanum sínum og duglegasta starfsmanni hótelsins, Hvata, sem myndi allt fyrir Evu og hótelið gera og vill alls ekki missa hana úr örmum sér. Grjóni, barþjónninn, daðrar við allt sem hreyfist og virðist alltaf vera að plotta eitthvað. Svo er hin klaufska Halla móttökustjóri er að springa úr vonlausri ást á fattlausa kokkinum Rikka sem virðist ekki einu sinni átta sig á því að Halla sé kona. Þegar Dagur bætist í þennan sérkennilega starfsmannahóp er eins og snjóbolti rúllar af stað sem þrýstir öllum þessum fjölskyldutengslum, ástarsamböndum og vinsköpum hótelsins að þolmörkunum.

Í þessari stórkostlegu sýningu leggjast allir á eitt til að sprengja út lögum Friðriks Dórs með því að segja þessa hugljúfu sögu. Falleg, skemmtileg og fyndin stórsýning sem allir hafa gaman af!





Leikstjórn
Höskuldur Þór Jónsson

Tónlist
Friðrik Dór Jónsson

Handrit
Höskuldur Þór Jónsson
Berglind Alda Ástþórsdóttir

Framleiðsla
Máni Huginsson

Aðstoðarleikstjórn
Karla Kristjánsdóttir

Grafísk hönnun og ljósmyndun
Stefanía Elín Linnet

“Þau eru alveg með’etta” - S.B. Víðsjá, RÚV

“Sagan var yndisleg og virkaði virkilega vel með bestu lögunum hans Frikka” - M.S.Þ. DV

“Það má hiklaust mæla með þessu fyrir aðdáendur Friðriks Dórs á öllum aldri” - S.B. Víðsjá, RÚV

“...kemur það því engum á óvart að [Kristinn Óli] hafi sungið lögin hans Frikka frábærlega” - M.S.Þ. DV

LEIKARAR

Endilega skoðið heimasíðu Hlið við hlið fyrir frekari upplýsingar!
https://www.hlidvidhlid.is

Eða fylgið okkur á samfélagsmiðlum!
Facebook: https://facebook.com/hlidvidhlid
Instagram: https://www.instagram.com/hlidvidhlid/

Next
Next

UNDIR