
nauðbeygð messa nýrra tíma
Aukasýning Salur 2
19. júlí
Verið velkomin til messu þann 19. júlí í Háskólabíó kl. 20:00. Barnastarfið byrjar í kirkjunni um leið og messan. Prestar kirkjunar þjóna fyrir altari og organisti og kórstjóri kirkjunnar stýra tónlistinni. Messuþjónar gegna mörgum hlutverkum í helgihaldinu. Boðið verður upp á blóð og líkama krist fyrir svo örvæntið ey fyrir hungri. Svohljóðandi myndi boðun í guðsandarmessu hljóma. Þetta er ekki guðsandarmessa, þetta er Nauðbeygð Messa Nýrra Tíma. Slíkar messur eru sársaukafull þjáning, öngþveiti, lostafullar en fyrst og fremst tregafullur viðburður sem boðar breytingar á þeim siðum og tímum sem við lifum á. Nauðbeygðar Messur eru settar upp þegar að samtíminn hefur misboðið velsæmi skapandi manna og þeir sjá engan annan leik á borði en að boða til prédikunar um nýja og betri tíma sem losa okkur undan fjötrum siðrofs og sýndarmennsku.
Leikritið fjallar um Kláus Alfreð Alfreðsson sem hefur tekið þá einu ákvörðun að taka sitt eigið líf eftir hvatningu frá sálfræðingnum sínum. Þrátt fyrir viðleitnar tilraunir til þess virðist sem svo að í hvert sinn sem hann reyni að taka sitt eigið líf þá verður hann fyrir truflun frá samferðarfólki sínu. Kláus neyðist því til að takast á við þann skakka raunveruleika sem hann er nauðbeygður til að lúta.
Höfundur
Einar Baldvin Brimar
Leikstjóri
Vignir Rafn Valþórsson
Leikmynd
Brjánn Hróbjartsson
Axel Auðunson
Tónlist
Jakob van Ousterhout
Búningar og förðun
Sara Sól Sigurðardóttir
Nína Rún Gunnarsdóttir
Biskup
Starkaður Pétursson
Messuþjónar
Selma Rán
Mikael Emil Kaaber
Prestur
Arnór Björnsson
Djákn
Berglind Alda Ástþórsdóttir
Organisti
Jakob van Ousterhout
Athugið að sýningin er ekki við hæfi barna