BIGGI MAUS

TÓNLEIKAR

11. ÁGÚST

Biggi Maus í Háskólabíó 11. ágúst.

Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi Maus, hefur síðastliðin tvö ár átt eina af mögnuðustu endurkomum inn í íslenskt tónlistarlíf eftir að hafa dregið sig í hlé í áraraðir. Hann er þekktastur fyrir störf sín með hljómsveitinni Maus en hefur nú ýtt sólóferli sínum aftur úr hlaði með látum.

Nýverið gaf hann út breiðskífuna 'Litli dauði / Stóri hvellur' við frábærar undirtektir. Breiðskífan var hans fyrsta í nokkur ár og var valin 'Plata vikunnar á Rás 2' vikunni eftir útgáfu. Óhætt er að segja að platan hafi hlotið glimrandi dóma gagnrýnendenda og kallaði Arnar Eggert Thoroddsen plötuna m.a. 'milljón króna perlu' í umfjöllun sinni í RÚV.

Platan var pródúzeruð af Togga Nolem sem hefur áður starfað með Skyttunum, Kött Grá Pjé, tilrauna sveitinni Mafama og rokksveitinni Leður. Platan kemur svo út á vínyl þann 26. júlí næstkomandi.

Í kjölfar útgáfunnar hefur Biggi raðað í kringum sig nýrri tónleikasveit sem hann kallar Memm. Þeir stefna á tónleika víða um land í haust og vetur.

Tónleikarnir í Háskólabíó verða þeir fyrstu með nýju sveitinni. Leikin verða lög af nýju plötunni í bland við vel valin og þekktustu lög Bigga af 30 ára ferli hans.

Auk Bigga Maus & Memm koma fram á tónleikunum;
Drengurinn Fengurinn
Rósa Ómars
Steini Bendix


Previous
Previous

Izleifur

Next
Next

Ingi Þór