
UNA torfa
TÓNLEIKAR
27. júlí
Söngvaskáldið Una Torfa er fædd árið 2000. Una semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní árið 2022. Textar Unu eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.
Á liðnu ári hefur Una komið víða fram, sem dæmi má nefna tónleika hennar í Iðnó á Iceland Airwaves, framkomur í Vikunni með Gísla Marteini við þrjú tilefni, tvenna tónleika á Akureyri og fjölmörg önnur gigg.
Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína “Flækt, týnd og einmana”. Hún var einnig tilnefnd sem nýliði ársins á hlustendaverðlaununum 2023 og vann söng ársins í flokknum ‘Popp-, rokk, hiphop- og raftónlist’ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.