
VITFús blú og Vélmennin
Nýr íslenskur söngleikur eftir Egil Andrason
Frumsýnt Salur 2
10. ágúst
Árið er 3033. Úti er öll trú. Geim/vélmenna/stuðsöngleikssýningin VITFÚS BLÚ er handan við hornið. Eru þið tilbúin? Eru þið í stuði!?!?! Eins gott að panta miða sem fyrst, því aðeins takmarkaður fjöldi fær aðgang að Club DMX til að hlusta á Valerie Poppskínu fara með sinn nýjasta hittara: „Gimme Your Face”. Algríma Alheimsforseti er um þann mund að fullkomna Sálsundrunginn sem hún ætlar að nota til að sprengja sál mannkynsins. Mun henni takast það? Eða mun VITFÚS BLÚ stöðva hana í tæka tíð? Og mun takast að lögleiða hjónaband róbóta og manna? Vitfús Blú og Vélmennin er nýr íslenskur söngleikur sem fagnar ófrumleikanum og þversögnum mennskunnar í gegnum ýktan dans, stórsöng og ofleik.
Leikstjóri, laga-texta-og handritshöfundur
Egill Andrason
Aðstoðarleikstjóri og meðhöfundur
Hafsteinn Níelsson.
Leikarar
Halldór Ívar Stefánsson
Helga Salvör Jónsdóttir
Mikael Emil Kaaber
Mímir Bjarki Pálmason
Molly Mitchell
Salka Gústafsdóttir
Sölvi Viggósson Dýrfjörð
Tónlistardramatúrg og meðhöfundur
Kolbrún Óskarsdóttir
Hljómsveit
Guðmundur Grétar á gítar
Moritz Christiansen á saxófón og þverflautu
Jóhann Þór Bergþórsson á bassa
Oddur Helgi Ólafsson á harmonikku og saxófón
Þorsteinn Jónsson á slagverki
Þórhildur Hólmgeirsdóttir í hljómsveitarstjórn og á hljómborði
Sviðshreyfingar
Sara Lind Guðnadóttir
Söngstjóri
Eik Haraldsdóttir
Pródúsent á raftónlist
Una Mist Óðinsdóttir
Ljósahönnun
Sölvi Viggósson Dýrfjörð ásamt Agli Andrasyni
Búningahönnun
Hildur Kaldalóns Björnsdóttir
Hönnun á plakati
Brynja Sigurðardóttir




